Nína Richter's Avatar

Nína Richter

@ninarichter.bsky.social

Laganemi og menningarsnauð áhugakona um rómantískar, létt erótískar fantasíuskáldsögur sem ætlaðar eru konum.

550 Followers  |  418 Following  |  508 Posts  |  Joined: 15.08.2023
Posts Following

Posts by Nína Richter (@ninarichter.bsky.social)

Ég ætla að fara og líta í eigin barm. Sé ykkur seinna.

09.03.2026 19:26 — 👍 1    🔁 0    💬 1    📌 0

Þetta er skellur.

09.03.2026 14:17 — 👍 4    🔁 0    💬 0    📌 0

Svo er alltaf einhver skunkur að segja mér að ég sé geggjuð. Ég er heil á geði, bara svo að það sé skýrt. Kýrskýrt.

09.03.2026 14:16 — 👍 6    🔁 0    💬 0    📌 0

Hver breytti?

09.03.2026 14:15 — 👍 1    🔁 0    💬 1    📌 0

Fólk skilur ekki merkingu orðsins kýrskýr og notar það stöðugt vitlaust. Sérstaklega fyrirlesarar í lagadeild. Þeir elska að spyrja í lok tímans hvort að allt sé ekki algjörlega kýrskýrt. Hvað varð um núans og merkingu orða í faginu, ég bara spyr.

09.03.2026 14:00 — 👍 10    🔁 0    💬 5    📌 1

Ég er svo ótæpilega hlynnt borgaralegum réttindum að ég myndi staðfastlega verja rétt Snorra til að tjá sig um ESB, þó að ég sé ósammála hér um bil hverju einasta orði sem hann segir.

09.03.2026 13:25 — 👍 2    🔁 0    💬 2    📌 0

Þetta life feed er geggjað

05.03.2026 18:32 — 👍 3    🔁 0    💬 1    📌 0

Væntanlega þyrfti samt hopp-hæð að vera reiknuð í hlutfalli við hæð barnsins.

04.03.2026 15:58 — 👍 7    🔁 0    💬 0    📌 0

Það ískrar í mér yfir áhyggjum fólks í lögfræðigrúppum, af því að þurfa að bera lagalega ábyrgð á „aðkomubörnum“ sem hoppa á trampólínum á sameign. Mig langar að leggja til lausn, skilti sem á stendur: „Aðkomubörn hoppið ekki hærra en 20 cm frá miðlínu tramps.“ En ég óttast reiði samborgara minna.

04.03.2026 15:57 — 👍 11    🔁 0    💬 1    📌 0

Það jaðrar við sjálfskaðahegðun að vera ekki með Rósalía X Björk á Brit awards klippuna á repeat í dag.

01.03.2026 15:56 — 👍 4    🔁 0    💬 0    📌 0

Úff 2001 módelin farin að slæda í dm á Slappinu. Ég dáist að hugrekkinu og sendi þeim til baka símanúmer hjá sérfræðingi í tengslaröskun.

26.02.2026 15:38 — 👍 14    🔁 0    💬 0    📌 0

Aðalriddari Sameinuðu þjóðanna

26.02.2026 15:32 — 👍 8    🔁 0    💬 0    📌 0

Ég var í 88 og gafst upp. Maðurinn minn kláraði á þrjátíu og eitthvað. Óþolandi dæmi en þúst, SAMGLEÐST 💀@kristjanhrannar.bsky.social

25.02.2026 21:18 — 👍 4    🔁 0    💬 1    📌 0

Get ekki sett þetta grín inn á Slapp af því að þessi smádýr á Slappinu eru öll fædd eftir hrun og hafa aldrei séð Pocahontas eða horft á neitt lengra en 90 sekúndna vídjó í símanum sínum.

25.02.2026 15:28 — 👍 10    🔁 0    💬 0    📌 0

Mér líður eins og ég sé þarna ömmutréð í Pocahontas þegar ég tjái mig inni á Slapp appinu og leyfi unglingunum að njóta visku minnar.

25.02.2026 15:26 — 👍 11    🔁 0    💬 1    📌 0

True crime-væðing sem er innflutt frá BNA. Þetta er að blómstra hér á landi. Ég gæti rantað í heila viku.

24.02.2026 16:07 — 👍 16    🔁 0    💬 1    📌 0

Má 2026 verða árið þegar konum verður leyft að starfa við tónlistargagnrýni á Íslandi? Bara einhverjum konum. Plís.

17.02.2026 23:30 — 👍 15    🔁 0    💬 0    📌 0

Því miður eru bara aldrei selir í Hlíðunum en það eru fréttirnar sem ég vil sjá.

11.02.2026 15:39 — 👍 6    🔁 0    💬 0    📌 0

"Selur í Hlíðunum" og ég þarf að opna fréttina til að vita hvort að þetta fjalli um fasteignir eða dýralíf.

11.02.2026 15:21 — 👍 22    🔁 0    💬 3    📌 0

Ég á foreldri í krabbameinsmeðferð. Aðstaðan á dagdeild LSH er troðið rými, bilaðar gardínur, hljóðmengun frá byggingarframkvæmdum og almennt seventís hallæri. Við erum ríkt land, þetta þarf ekki að vera svona.

05.02.2026 12:47 — 👍 11    🔁 0    💬 1    📌 0

Að Heiða borgarstjóri sé að biðjast afsökunar á því að kalla Pétur reynslulítinn og frægan segir mér tvennt. A) Svona tapar hún prófkjörinu B) Ég er ekki nógu næs gella fyrir pólitík því að ég myndi aldrei í lífinu biðjast afsökunar á svona ómóðgandi ummælum.

24.01.2026 11:28 — 👍 13    🔁 0    💬 0    📌 0

Ég er með rosa langan brandara um Múmín Alpha þátt sem aldrei var sýndur þar sem Múmínsnáðinn fór að hlusta á hlaðvarp gegnsýrt af baneitraðri karlmennsku og endaði á að verða mjög massaður og gerði kjálkaæfingar til að fá karlmannlegra trýni, en ég hef ákveðið að setja þetta grín á bakvið paywall.

23.01.2026 00:53 — 👍 14    🔁 0    💬 1    📌 0

Danmörk og Írland framleiða Ozempic og Botox. Það verður eitt stórt úbbossí þegar það snarhækkar í verði í Ameríkunni. Jiminneini.

20.01.2026 23:11 — 👍 3    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image

Þegar fólk spyr mig hvort að það sé ekki gaman í lögfræði og ég svara jú bara fínt versus það sem mig langar í alvörunni að segja:

19.01.2026 21:22 — 👍 20    🔁 2    💬 0    📌 0

Sjálfbærni er líka fyrsta atriðið sem er talað um í fréttatilkynningunni en hvergi sýnt fram á hvar þessi sjálfbærni birtist. Ég hló að þessu í morgun. Hló og grét.

14.01.2026 16:29 — 👍 6    🔁 0    💬 1    📌 0

Fólk á norðurslóðum á að leggja niður vinnu yfir vetrarmánuðina með sama hætti og gert er í Múmíndal. Samfélagið á að fá sér lúr og te og lesa bækur. Allt annað er óeðlilegt.

13.01.2026 09:02 — 👍 34    🔁 4    💬 3    📌 0

Ég á enn eftir að lesa frétt um einhvern sem var of seinn að finna ástina. Samkvæmt fjölmiðlum hefur það aldrei komið fyrir neinn.

09.01.2026 01:13 — 👍 10    🔁 0    💬 0    📌 0

What a time to be alive og vera að skrifa lokaritgerð í þjóðarétti. Heimildirnar að uppfærast daglega af því að &*einhver*& getur ekki hætt að segja sig úr áralöngu alþjóðasamstarfi.

08.01.2026 21:01 — 👍 7    🔁 0    💬 0    📌 0

Að ég þurfi að koma hingað eins og pöpullinn að betla ástarljóð

06.01.2026 08:58 — 👍 19    🔁 0    💬 1    📌 0

Ég er ekkert að fordæma þessi lögbrot. Ég og vinir mínir ætlum að fylgjast með og horfa af því að gaurinn sem braut lög á ógeðslega flottan bíl.

04.01.2026 12:16 — 👍 6    🔁 0    💬 0    📌 0