GÓÐ FRÉTT! EIN GÓÐ FRÉTT!
bara þrjár sprengingar í svíþjóð í febrúar
@stridarokk.bsky.social
Rúmlega þrítugur læknir í Linköping, Svíþjóð. Elska pólitík, matargerð, Eurovision og Stjórnina.
GÓÐ FRÉTT! EIN GÓÐ FRÉTT!
bara þrjár sprengingar í svíþjóð í febrúar
já ég sagði aldrei að þessi atburðarás hefði ekki verið eftirsóknarverð
08.02.2025 20:14 — 👍 4 🔁 0 💬 0 📌 0Ég er sjálf utan að landi og notaði innanlandsflug mikið sem barn/unglingur til að flakka á milli foreldra minna. Ég er líka læknir og ber virðingu fyrir sjúkrafluginu. Skil þessi sjónarmið en það er ekki samt ekki forsvaranlegt að hafa flugrekstur á besta byggingarlandi í Reykjavík.
08.02.2025 14:39 — 👍 4 🔁 0 💬 0 📌 0þau verða hvortsemer bráðum ekki með kosningarétt í Reykjavík
07.02.2025 21:15 — 👍 2 🔁 0 💬 0 📌 0Ef Guðni hefði viljað vera áfram forseti
hefði Katrín ekki farið í framboð
ríkisstjórnin hefði ekki fallið
engar kosningar
Dagur hefði ekki farið á þing
meirihlutinn í borginni væri ekki fallinn
og það væri bara ekkert að frétta á Íslandi
Er einhver manneskja með kosningarétt í Reykjavík sem vill flugvöllinn EKKI úr Vatnsmýri?
07.02.2025 20:47 — 👍 18 🔁 0 💬 4 📌 0Búin að gefa Komið gott heiðarlegan séns, búin að hlusta á 6 þætti. Finn bara heilann minn minnka. Af hverju finnst öllum þetta æðislegt?
07.02.2025 20:28 — 👍 3 🔁 0 💬 0 📌 0Nútímasamfélag fælir fólk frá því að mennta sig í menntunar-, heilbrigðis- og umönnunarstörfum.
Það er bara best að taka þátt í kapítalíska hagkerfinu og reyna að ná á 40 undir 40 listann. Fá árshátíð í útlöndum og 66 norður úlpu í jólagjöf.
😂
28.01.2025 23:17 — 👍 0 🔁 0 💬 0 📌 0þá myndi ekkert virka heima hjá mér😅
28.01.2025 19:48 — 👍 3 🔁 0 💬 1 📌 0Er til stuðningshópur fyrir maka þeirra sem elska Snjallheimilið?
28.01.2025 19:38 — 👍 9 🔁 0 💬 2 📌 0já það er rétt, það var í öðrum umræðum í dag sem talað var um 3%. Það var sú tala samt sem ég vitna í, í samhengi við sænsku barnabæturnar. Beint uppúr sænsku sjónvarpsfréttunum í kvöld.
Leiðréttist hér með
Heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir hermönnum, verkfræðingar sem hanna byssukúlur til að valda sem mestum skaða, allt fólkið sem velur að helga líf sitt herstörfum.
Trump vill að NATO ríki verji 3% af BNP í varnarmál. Þá þyrfti Svíþjóð að auka framlög um því sem nemur öllum barnabótum landsins á ári
Þessa vikuna hef ég verið á námskeiði í stríðsáverkafræði - meðhöndlun helstu áverka í stríði og með takmarkaðan aðgang að lyfjum og tækjabúnaði. Ekki að eigin frumkvæði nb.
Pælið í því ef öll þessi orka og fjármunir í heiminum, sem fer í að taka þátt í ofbeldi, væri notuð í eitthvað annað?
Að fara með 2ja ára út á snjósleða
50% plís viltu fara í útifötin
20% plís ekki borða skítugan snjó
10% plís ekki sleikja götuna
10% getum við bara labbað áfram?
8% ji hvað ég á krúttlegt barn
2% jei gaman að renna
alltaf þegar ég er lasin
mamma: heldurðu að þú sért nokkuð að fá heilablóðfall?
ég: nei ég er ekki að fá heilablóðfall
mamma: viltu ekki bara fara til læknis?
ég: mamma ég er 35 ára. og ég er læknir.
já heldur betur, reyktur silungur veiddur af pabba mínum í Mývatnssveit og sendur hingað til mín í Svíþjóð🥰
22.12.2024 00:27 — 👍 2 🔁 0 💬 0 📌 0þessi terta heitir Dísudraumur, engar perur í henni en mjög svipuð perutertu samt. Svampbotn, rjómi, súkkulaðirjómakrem, margengsbotn, rjómi, súkkulaðirjómakrem og svo rjómi allt í kring👌
21.12.2024 20:45 — 👍 1 🔁 0 💬 0 📌 0Laufabrauðsgerð kalla á góðar veitingar. Í ár var þemað Suður-Þingeyjarsýsla 1968💥
21.12.2024 19:49 — 👍 15 🔁 0 💬 2 📌 0Sagði einhver kleinur?😻
19.12.2024 22:26 — 👍 8 🔁 0 💬 1 📌 0Ég fer alltaf yfirum jólin
Nýjar gardínur, nýjar sardínur
Alltaf gaman að byrja daginn á því að sjokkera miðaldra karlmenn með því að það sé litla ég sem ætlar að gera skurðaðgerðina þeirra.
Är det DU som ska operera mig? FY TUSAN!
Á jóladag í ár, mín fimmtu jól í Svíþjóð, verða skonsur með hangikjöti, hangikjötssalat og tartalettur með hangikjöti, uppstúf og grænum baunum. Skonsubrauðterta með skinkusalati og rúgbrauð með reyktum silungi.
Á annan í jólum verður lambahryggur frá Mývatnssveit👑
Einu sinni var ég nýflutt til útlanda og þurfti sko ekkert frá Íslandi til að halda jól.
Jóladagur í fyrra var helgaður sænskum jólamat - kjötbollur, síld, graflax, pylsur og allar gerðir af unnu svínakjöti, hrökkbrauð með smjöri og engin sósa. Núna er það búið og ég þarf aldrei að gera það aftur.
Getum við ekki bannað fjölmiðla hérna á Skýinu?
Amk hópblokk á Mannlíf ef þau fara að púlla fréttastofu RÚV takk
Nei þú mátt ekki horfa á Hvolpasveit af því það er svo mikið áreiti og þú lærir ekkert á því
Grétu Grís? Nei það eru svo miklir fitufordómar
sagði hún, svæfði barnið og kveikti svo á Paradise hotel
Ég held að Inga sé best geymd í forsætisráðuneytinu, góð stemmningsmanneskja þar.
Kristrún fjármálaráðherra
Togga utanríkisráðherra
Jóhann Páll dómsmálaráðherra
Alma heilbrigðisráðherra
Obba innviðaráðherra
Ragnar Þór félagsmálaráðherra
Logi umhverfisráðherra
Lásuð það fyrst hér
Ef ykkur vantar kjörnun á aðventunni mæli ég með jólakortaskrifum
03.12.2024 23:31 — 👍 1 🔁 0 💬 0 📌 0Ég skipti alltaf ósjálfrátt yfir í unglingamataræði á næturvöktum
Billys örbylgjupizza í kvöldmat á vaktinni, nammi í desert
Vakna svo um tvöleytið eftir hádegi og skelli tveimur brauðsneiðum með osti og seasonall í örbylgjuofninn
Ég vona bara að ekkert embætti heiti matvælaráðherra í næstu ríkisstjórn. Matvæli er svo ógeðslegt orð
02.12.2024 00:25 — 👍 0 🔁 0 💬 2 📌 0