Fréttastofa RÚV's Avatar

Fréttastofa RÚV

@ruv.is.bsky.social

Helstu fréttir af atburðum líðandi stundar, bæði innanlands og erlendis. Latest news from the newsroom of RÚV.

1,170 Followers  |  1,196 Following  |  533 Posts  |  Joined: 15.11.2024  |  1.7669

Latest posts by ruv.is on Bluesky

Post image

🌎Sænski aðgerðasinninn Greta Thunberg ætlar ásamt fleira fólki að sigla aftur á nokkrum skipum til Gaza með hjálpargögn.

📅Lagt verður upp frá Spáni 31. ágúst og hópurinn ætlar, að sögn Thunberg í færslu á Instagram, að rjúfa herkví Ísraelsmanna.

11.08.2025 08:51 — 👍 4    🔁 0    💬 0    📌 1

Fjöldi gatna verður lokaður fyrir umferð vegna göngunnar. Kort yfir götulokanir má sjá í betri upplausn hér: reykjavik.is/sites/defaul...

08.08.2025 18:00 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image Post image

Götulokanir verða frá klukkan 8 til 18 á morgun vegna Gleðigöngunnar. Gengið verður frá Hallgrímskirkju klukkan 14 niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuveg. Gangan endar í Hljómskálagarði.

08.08.2025 18:00 — 👍 5    🔁 0    💬 1    📌 0
Preview
Öryggisráð Ísraels samþykkir að innlima Gaza - RÚV.is Öryggisráð Ísraelsríkis samþykkti í nótt áætlun Benjamíns Netanjahús forsætisráðherra um að innlima allt Gaza-héraðið.

Netanjahú hefur sagt að aðeins standi til að halda þar völdum tímabundið, eða í um fimm mánuði. Til frambúðar þurfi að tryggja nýja valdhafa, sem eru hvorki Hamassamtökin né stjórnvöld á Vesturbakkanum.

Lesa nánar: www.ruv.is/frettir/erle...

08.08.2025 13:50 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image

Öryggisráð Ísraelsríkis samþykkti í nótt áætlun Benjamíns Netanjahús forsætisráðherra um að innlima Gaza-hérað í heild sinni.

08.08.2025 13:50 — 👍 0    🔁 0    💬 1    📌 0
Preview
Gallabuxur og gen: Stríðið um Sydney Sweeney - RÚV.is Fasismi, útilokunarmenning, hundaflautustjórnmál, tolla- og menningarstríð. Hvernig tengjast gallabuxur Sydney Sweeney tollastríði Donalds Trump við Kína? Eru leynd skilaboð um kynbætur í auglýsingu A...

Fasismi, útilokunarmenning, hundaflautustjórnmál, woke-ismi. Hvernig tengjast gallabuxur Sydney Sweeney tollastríði Donalds Trump við Kína? Eru leynd skilaboð um kynbætur í auglýsingu American Eagle?

08.08.2025 13:42 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image 07.08.2025 09:36 — 👍 1    🔁 0    💬 1    📌 0
Post image

15 prósenta innflutningstollar á vörur frá Íslandi tóku gildi í Bandaríkjunum í dag.

Ísland er meðal um níutíu landa sem Bandaríkjamenn þurfa nú að greiða hærri tolla fyrir innflutning. Lágmarkið er 15 prósent, en tollurinn er hærri fyrir innflutning frá mörgum þeirra af ýmsum ástæðum.

07.08.2025 09:36 — 👍 0    🔁 0    💬 1    📌 0
Preview
Af hverju getur ungt fólk ekki keypt nýjar íbúðir? - RÚV.is Fáir hafa tök á því að komast inn á fasteignamarkaðinn á eigin vegum enda standast 80% einstaklinga ekki greiðslumat, en af hverju er það?

Fáir hafa tök á því að komast inn á fasteignamarkaðinn á eigin vegum enda standast 80% einstaklinga ekki greiðslumat, en af hverju er það?

06.08.2025 15:48 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Preview
Nawrocki tekinn við embætti forseta í Póllandi - RÚV.is RÚV.is

Hann er hlynntur áframhaldandi stuðningi Pólverja við Úkraínu en segir of miklu fé varið til Úkraínumanna sem hafa flúið til Póllands. Þá er hann á móti aðild Úkraínu að Atlantshafsbandalaginu.

Lesa nánar: www.ruv.is/frettir/erle...

06.08.2025 10:47 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image

Karol Nawrocki sór í morgun embættiseið sem forseti Póllands. Slagorð hans í kosningabaráttunni var „Pólland fyrst, Pólverjar fyrst“.

06.08.2025 10:47 — 👍 0    🔁 0    💬 1    📌 0
Preview
Krefjast þess að GHF verði lögð niður - RÚV.is Átján sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna og skýrslugjafar krefjast þess að hjálparstofnunin GHF verði lögð niður. Hún sé úlfur í sauðargæru og grafi ekki aðeins undan mannúðarstarfi á Gaza heldur geti hú...

Átján sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna og skýrslugjafar 👨‍🔬📄 krefjast þess að hjálparstofnunin GHF verði lögð niður⛔.
•Hún sé úlfur í sauðargæru og grafi undan mannúðarstarfi á Gaza.
•Bandarísk stjórnvöld settu GHF á laggirnar að undirlagi Ísraela.
Nánar hér 👇

05.08.2025 18:52 — 👍 3    🔁 0    💬 1    📌 0
Preview
Reynisfjara „sennilega eitt skýrasta og versta dæmið“ um að ferðamenn meðtaka ekki viðvaranir - RÚV.is Ráðherra ferðamála segir skýrar viðvaranir nauðsynlegar um hættur í og við Reynisfjöru.

Ráðherra ferðamála segir skýrar viðvaranir nauðsynlegar um hættur í og við Reynisfjöru.

05.08.2025 18:47 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Preview
Rauða ljósið í Reynisfjöru kviknar fyrr - RÚV.is Hættustuðull ölduspárkerfis í Reynisfjöru verður aðlagaður að breytingum í náttúrunni og rauða ljósið kviknar fyrr í kjölfarið. Óheimilt verður að fara niður að stuðlabergi og í Hálsanefshelli þegar r...

Landeigendur í Reynisfjöru, Ferðamálastofa, lögreglan á Suðurlandi, SafeTravel og Björgunarsveitin Víkverji sátu fundinn.

05.08.2025 18:47 — 👍 0    🔁 0    💬 1    📌 0
Post image Post image Post image

Rauða ljósið 🔴 í Reynisfjöru kviknar fyrr.

05.08.2025 18:47 — 👍 1    🔁 0    💬 1    📌 0
Post image

Níunda eldgosinu 🌋 á Sundhnúksgígaröðinni, sem hófst 16. júlí, er lokið. Aðstæður við gosstöðvarnar eru enn lífshættulegar ⚠️☠️.
Nánar hér: www.ruv.is/frettir/innl...

05.08.2025 14:08 — 👍 15    🔁 2    💬 0    📌 1
Post image

Níunda eldgosinu 🌋 á Sundhnúksgígaröðinni, sem hófst 16. júlí, er lokið. Aðstæður við gosstöðvarnar eru enn lífshættulegar ⚠️☠️.
Nánar hér: https://ruv.pulse.ly/cfpvjuipta

05.08.2025 14:05 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Preview
Vindur getur náð stormstyrk í Vestmannaeyjum - RÚV.is Ört dýpkandi lægð nálgast landið úr suðvestri og er ívið fyrr á ferðinni en spár gerðu ráð fyrir að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Lægðin verður í aðalhlutverki um verslunarmannahelgina.

Þjóðhátíðargestir í Vestmannaeyjum mega búa sig undir hvassviðri í kvöld og nótt.

01.08.2025 13:15 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image

Þegar Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur er spurður hvar finna megi mestu veðursældina um helgina stendur ekki á svörum.
„Ég held að það sé engin spurning, það er á Austurlandi og Norðausturlandi þar sem verður að mestu leyti friður fyrir rigningunni.“

01.08.2025 13:15 — 👍 1    🔁 0    💬 1    📌 0
Post image

🌍Á síðustu dögum hafa Frakkland, Bretland og Malta líka lýst því yfir að ríkin séu reiðubúin að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki.

31.07.2025 09:54 — 👍 3    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image

🇨🇦 Forsætisráðherra Kanada tilkynnti í gær að ríkið ætli að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í haust.

31.07.2025 09:54 — 👍 6    🔁 0    💬 1    📌 0
Preview
Stálu hundruðum lítra af díselolíu úr flutningabílum í skjóli nætur - RÚV.is Þjófagengi herjar á fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og stelur olíu úr tönkum flutningabifreiða. Talið er að þjófarnir hafi stolið yfir þúsund lítrum á undanförnum mánuðum.

Það var á föstudagsmorgun sem bílstjóri hjá Fraktlausnum 🚛 mætti til vinnu og tekur eftir því að olíumælirinn á flutningabíl hans var óeðlilega lágur⛽.
Eftir nánari eftirgrennslan kemur í ljós að fjórir óprúttnir aðilar höfðu mætt í skjóli nætur í vafasömum tilgangi.

28.07.2025 18:56 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Preview
Tvö ísraelsk mannúðarsamtök komast að sömu niðurstöðu: „Ísrael fremur þjóðarmorð“ - RÚV.is Tvö stór mannúðarsamtök í Ísrael, Læknar fyrir mannréttindi og B’Tselem, hafa gefið út tvær skýrslur sem komast að þeirri niðurstöðu að Ísrael fremji þjóðarmorð á Gaza. Samtökin kalla eftir tafarlausu...

Þetta er í fyrsta sinn sem ísraelsk mannúðarsamtök lýsa yfir að Ísrael fremji þjóðarmorð á Gaza.

28.07.2025 18:19 — 👍 2    🔁 0    💬 0    📌 0
Preview
Trump ósammála Netanjahú: „Þessi börn virðast verulega hungruð“ - RÚV.is Donald Trump Bandaríkjaforseti og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands tilkynntu á blaðamannafundi að til standi að opna matvælastöðvar á Gaza. Vannærðum hefur fjölgað hratt á Gaza og 74 hafa látis...

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands tilkynntu á blaðamannafundi að til standi að opna matvælastöðvar á Gaza. Vannærðum hefur fjölgað hratt á Gaza og 74 hafa látist af þeim sökum það sem af er ári.

28.07.2025 15:45 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Video thumbnail

Donald Trump segist ekki sammála Netanjahú, sem neitar því að Ísrael sveltir fólk vísvitandi á Gaza. „Þessi börn líta út fyrir að vera mjög svöng,“ sagði Bandaríkjaforseti.

28.07.2025 15:39 — 👍 1    🔁 0    💬 1    📌 0
Preview
Íslensk tónskáld lofuð í Financial Times - RÚV.is Anna Þorvaldsdóttir, Bára Gísladóttir og María Huld Markan Sigfúsdóttir eru á meðal íslenskra tónskálda sem farið er fögrum orðum um í grein breska dagblaðsins Financial Times nú um helgina.

📰Blaðamaðurinn Andrew Mellor skrifar um íslensk samtímatónskáld í breska dagblaðinu Financial Times í gær, og segir að engin þjóð hafi umbreytt hinum sinfóníska hljómi 🎻🎶 með viðlíka tilþrifum á 21. öldinni og Íslendingar.

28.07.2025 13:46 — 👍 4    🔁 0    💬 0    📌 0
Preview
Misjöfn viðbrögð við tollasamningi - RÚV.is Forsætisráðherra Frakklands segir það hafa verið sorglegan dag í gær þegar samið var um 15 prósenta tolla á innflutning ESB. Forsætisráðherra Ungverjalands segir Bandaríkjaforseta hafa „étið forseta f...

Trump hótaði að setja 30 prósenta toll á innflutning frá ESB — Samið var um 15 prósenta tolla. 📦📉
Forsætisráðherra Frakklands segir ESB hafa með þessu sýnt undirgefni.
Forsætisráðherra Ungverjalands segir Bandaríkjaforseta hafa „étið forseta framkvæmdastjórnar ESB í morgunmat“ 🍽️.

28.07.2025 13:44 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Preview
Fulltrúi Miðflokksins yfirgaf hópinn - RÚV.is Miðflokkurinn hefur sagt sig úr þverpólitískum starfshópi sem vinnur að öryggis- og varnarstefnu fyrir Ísland. Ákvörðun forseta um að stöðva umræður um veiðigjöld var kornið sem fyllti mælinn.

🛡️ Hópurinn var skipaður í apríl og er vinna hans á lokametrunum samkvæmt heimildum fréttastofu.

28.07.2025 13:31 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image

📌 Miðflokkurinn segir sig úr þverpólitískum hópi um öryggis- og varnarstefnu Íslands.
📜Ákvörðun forseta Alþingis um að stöðva umræður um veiðigjöld🎣🐟 og knýja fram atkvæðagreiðslu varð til þess að fulltrúi flokksins, Ingibjörg Davíðsdóttir, sagði sig úr hópnum í júlí.

28.07.2025 13:31 — 👍 0    🔁 0    💬 1    📌 0
Preview
Streitan eltir fólk í sumarfríið - RÚV.is Fólk getur verið með miklar væntingar til sumarfrísins og orðið fyrir vonbrigðum þegar þær standast ekki, segir streitusérfræðingur. Mikilvægt sé að fólk hugi að eigin líðan og gefi sér tíma til að sl...

„Streita er raunverulega hormónatengt viðbragð þegar líkaminn upplifir álag, áreiti, hættu, ógn eða erfiðar aðstæður sem við ráðum ekki við. Þá spýtast út streituhormónar,“ segir Bára Einarsdóttir sem er viðskiptafræðingur og streituráðgjafi sem rekur ráðgjafaþjónustuna Streita og streitustjórnun.

28.07.2025 12:07 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0

@ruv.is is following 20 prominent accounts