Lilja 👽's Avatar

Lilja 👽

@lilja-th.bsky.social

Get ekki farið í pólitík út af gömlu moggabloggi. Kalla fólk líka stundum rottuhala þegar ég fæ road rage og kæmi ekki vel fyrir í pallborði. #Ísland #Reykjavík #SciFi #DrumAndBass #Hundar #Iceland

184 Followers  |  330 Following  |  109 Posts  |  Joined: 16.11.2024
Posts Following

Posts by Lilja 👽 (@lilja-th.bsky.social)

@ruvfrettir.bsky.social hefur ekki náð að skrifa nema svona þrjár setningar í fréttavaktinni um tolla Trump því hann þvaðrar svo mikið.

02.04.2025 20:53 — 👍 2    🔁 0    💬 0    📌 0

Disgusting.

22.01.2025 14:21 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Preview
Samtökin 78 fengið fjölda fyrirspurna frá hinsegin samfélaginu í Bandaríkjunum - RÚV.is Formaður Samtakanna 78 segir að tilskipun Trumps um að alríki Bandaríkjanna viðurkenni aðeins tvö kyn ógni félagslegu og lagalegu öryggi hinsegin fólks. Samtökin gera ráð fyrir að fólk sem er trans og...

Ég er sammála þessari grein og vonast til Ísland taki sig til og verði með læti á alþjóðavettvangi. Fordæmi ríkisstjórn Trump og bjóði hinsegin fólki hæli á Íslandi. Það má bara ekki gerast að USA komist upp með þetta. www.ruv.is/frettir/innl...

22.01.2025 14:20 — 👍 9    🔁 1    💬 0    📌 0

Þau eru að horfa á Kryddsíld, þannig að já.

31.12.2024 14:29 — 👍 1    🔁 0    💬 1    📌 0

Svipurinn á öllum þegar drýslakonungurinn talar 👌 #kryddsíld

31.12.2024 14:27 — 👍 2    🔁 0    💬 0    📌 0

A point eða aðeins meira, annars er það bara hitað brauð, ekki ristað, fjandinn hafi það.

31.12.2024 14:23 — 👍 2    🔁 0    💬 0    📌 0
Hundarnir við jólatréð.

Hundarnir við jólatréð.

Gleðileg jól 🥰

24.12.2024 22:02 — 👍 16    🔁 0    💬 2    📌 0

Get nánast fullyrt að Bjarni Ben hafi aldrei borðað þunna súpu á ævinni.

21.12.2024 17:58 — 👍 10    🔁 0    💬 0    📌 0

"Svo kaupum við bara chatGPT Pro áskrift í staðinn fyrir allar þessar nefndir."

21.12.2024 14:42 — 👍 5    🔁 0    💬 0    📌 0

Kannski erum við öll inni í loftbólu falskra vona því síðustu stjórnir hafa verið svo ömurlegar. Við viljum trúa en það eru alveg rauð flögg.

21.12.2024 14:08 — 👍 8    🔁 0    💬 1    📌 0

Nei, því miður kemur þetta ekki á óvart.

21.12.2024 13:56 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image

Skál fyrir nýrri ríkisstjórn, mínus útlendingamálin/rasismann. Ekki fokka þessu upp.

21.12.2024 13:51 — 👍 13    🔁 0    💬 1    📌 0

Ég er orðin nógu gömul til að geta beðið (fullorðnu) börnin sjá um 80% af jólastússinu, svo kaupi ég semí-tilbúinn jólamat og er bara alls ekkert í jólastressi eða vondu skapi 👌

20.12.2024 20:04 — 👍 6    🔁 0    💬 0    📌 0

Heimilisþræll.

20.12.2024 19:59 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0

Sósa, basilika, ostur, rest af áleggi 🍕

20.12.2024 19:57 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0

Ooooojjjjjjj nei þá er nú hátiðlegra að vera bara með smá kvef.

20.12.2024 07:31 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0

Jólakvefið komið í hús 🥰👌

19.12.2024 21:37 — 👍 3    🔁 0    💬 1    📌 0
Typpajóladrykkur á reðasafninu.

Typpajóladrykkur á reðasafninu.

Hvers vegna erum við svona skrítin?

16.12.2024 16:50 — 👍 4    🔁 0    💬 0    📌 0
Vondir machintosh molar fyrir siðblindingja

Vondir machintosh molar fyrir siðblindingja

16.12.2024 14:55 — 👍 7    🔁 0    💬 1    📌 0

Ah, jólin. Of margir hittingar og viðburðir, ekki nægur tími fyrir tölvuleiki og smákökur. Þetta fer versnandi með árunum, sama hvað ég reyni.

15.12.2024 13:08 — 👍 12    🔁 0    💬 0    📌 0

Ég hef undanfarið reynt að miðla málum og segja 'ristill' en fjölskyldan hefur neitað að taka orðið í notkun. Þetta meikar samt sens, sbr. "Settu brauð í ristilinn."

14.12.2024 12:29 — 👍 8    🔁 0    💬 1    📌 0

Whattttt! En að láta svæfa sig í svona 5-10 daga þá í staðinn?

10.12.2024 19:09 — 👍 3    🔁 0    💬 1    📌 0
Hundur með perrasvip.

Hundur með perrasvip.

Tíkin í næstu íbúð er að lóða þannig að Tetris (steingeldi) setur upp þennan svip og reynir að hömpa fóstbróður sinn.

09.12.2024 20:11 — 👍 7    🔁 0    💬 0    📌 0

Ég verð svakalega reið þegar snjallúrið tilkynnir mér: "You've had an easy day..." Þú veist ekkert um það, helvítið þitt.

09.12.2024 20:06 — 👍 11    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image

🤔

09.12.2024 20:03 — 👍 9    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image

Á ég að safna mér forða af birgjum sem selja mandarínur eða hvernig virkar þetta?

08.12.2024 11:20 — 👍 12    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image

Er einhver „valkyrjanna” búin að tjá sig eitthvað um þetta mál?🤔

06.12.2024 13:53 — 👍 36    🔁 5    💬 2    📌 0

Já, VG hefði átt að taka þátt í starfsstjórninni, til dæmis til að koma í veg fyrir þetta hvalaveiðileyfi, en mér finnst að það eigi samt að ræða meira hvað náunginn sem veitti það sé mikil auðvaldslufsa.

05.12.2024 18:36 — 👍 9    🔁 0    💬 0    📌 0

Ótrúlega góður, ég er að spila í þriðja sinn og það er nánast eins og nýr leikur í hvert skipti eftir stefnunni sem maður tekur.

05.12.2024 09:34 — 👍 2    🔁 0    💬 0    📌 0