Hárrétt hjá Birni Leví! Þetta er ein stærsta àskorunin núna
01.12.2024 22:55 — 👍 3 🔁 1 💬 0 📌 0
@kristinnjo.bsky.social
Hárrétt hjá Birni Leví! Þetta er ein stærsta àskorunin núna
01.12.2024 22:55 — 👍 3 🔁 1 💬 0 📌 0Svona fór um sjóferð þá.
Píratar eru samt ekki bara þingflokkurinn, heldur hreyfing öflugs fólks sem mun halda áfram að berjast fyrir mannréttindum, náttúrunni og óspilltu samfélagi á breyttum vettvangi.
Við þökkum öllum sem treystu okkur fyrir atkvæði sínu og tóku þátt í baráttunni með okkur.💜💜💜
18,4% atkvæða í Reykjavík sem detta niður dauð, kannski kominn tími á að endurhugsa kerfið? #kosningar2024
01.12.2024 18:58 — 👍 66 🔁 12 💬 1 📌 0Aha, það var brunalyktin sem ég var að reyna þefa uppi 🤥
01.12.2024 16:34 — 👍 1 🔁 0 💬 0 📌 0Sagan endurtekur sig og við virðumst aldrei læra #kosningar2024
30.11.2024 23:58 — 👍 60 🔁 10 💬 0 📌 0Það var ekki „sexý” að tala um helstu ógnir heimsins í þessarri kosningabaráttu og þar með strokaðist út það fólk sem stendur með mannréttindum og berst fyrir lífvænlegri jörð.
Þetta er hræðileg þróun.
Ef þú vilt frjálslynda og framsýna félagshyggjustjórn þá eykurðu líkurnar mest á því með því að setja X við P - þar sem að þingmannafjöldinn margfaldast með því að rjúfa 5% múrinn 💜
30.11.2024 12:38 — 👍 3 🔁 1 💬 0 📌 0Frábær lokaorð hjá Þórhildi Sunnu. Við viljum taka þátt í frjálslyndri umbótastjórn þar sem við viljum passa upp á mannréttindi, umhverfið og lýðræðið. #kosningar24 #x24
29.11.2024 21:44 — 👍 25 🔁 6 💬 0 📌 0Tl;dr af svari KF:
Hvalveiðar: „Það eru skiptar skoðanir innan breiðfylkingar eins og Samfylkingarinnar um hvalveiðar“
Fiskeldið: atvinnufrelsi fólks trompar dýravernd.
Til gamans má rifja upp að Samfylkingin var hvorki með á frumvarpi Pírata um bann við hvalveiðum né sjókvíaeldi.
#kosningar24
(Sp. til Kristrúnar frá Sunnu): Það er eitt sem við Píratar söknum og það er náttúruverndin. Þið takið ekki nógu sterka afstöðu gegn hvalveiðum, ekki næga afstöðu gegn sjókvíaeldi, þið viljið virkja sem nemur heilli Kárahnjúkavirkjun
Hefur S ákveðið að fórna náttúrunni fyrir hagvöxt?
#kosningar24
hinn stærsti glæpur er þjóðarmorð. Við ættum að beita okkur eins og við höfum beitt okkur gegn Rússlandi, þar sem við höfum verið öflug rödd með friði og talað fyrir réttarfarslegum stuðningi.
Það þarf að stofna sérstakan dómstól út af glæpum gegn friði, vegna Úkraínu og Palestínu.
#kosningar24
Þ. Sunna: Það er þjóðarmorð í gangi í Palestínu.
Ísland getur verið sterk rödd á alþjóðavettvangi og beitt okkur fyrir frjálsri Palestínu.
Við getum beitt viðskiptaþvingunum og vopnabanni gegn Ísrael. Það er grundvallarskylda okkar sem þjóð á meðal þjóða -
#kosningar24 #x24
Já!! Vopnasölubann og viðskiptaþvinganir á israel!
@piratar.bsky.social Þ.Sunna þorir að kalla þjóðarmorð Þjóðarmorð! #kosningar24 #x24
Píratar vilja fá alla að borðinu, lífeyrissjóðina og verkalýðsfélögin.
Mikilvægt að við förum að huga að því hvernig samsetning þjóðarinnar er að breytast, við erum fleiri að fara búa ein, við gætum byggt kjarnasamfélög þar sem rýmum er deilt.
Við þurfum fjölbreyttar lausnir.
#kosningar24 #x24
Venjulegt fólk hefur þurft að búa við okurvexti í óratíma til að sporna við verðbólgunni.
Píratar vilja byggja umhverfisvæn einingahús sem hægt er að byggja upp hratt til að bregðast við því neyðarástandi sem nú ríkir.
Við viljum byggja almennt íbúðarhúsnæði öllum almenningi til bóta.
#kosningar24
Þ. Sunna: Það er ekki hægt að hækka lánakostnað heimilanna um hundruði þúsunda á mánuði og kalla það farsæla hagstjórn.
#kosningar24 #x24
Þ.Sunna: Þurfum að bregðast við breyttum tímum í skólakerfinu og annars staðar. Við þurfum að ýta undir sköpunarkraft, gagnrýna hugsun, upplýsingalæsi, skilning á forritun og gervigreind.
Hvers vega skyldi námsárangur fara versnandi?
Þarf að vera svona mikill hraði í samfélaginu?
#kosningar24 #x24
Það væru afhroð að missa 6 vinstrimenn út (næstum 10% af þingi!)
xJ og xP eru á mörkunum að fá 3 þingmenn hver.
Samfylking er alls ekki slæmur kostur, en munar ekki um 0,2% af 21,8%.
Þessa 6 vinstri þingmenn munar hins vegar um ~0,1%.
Þetta verður eina kosningateikið sem þið fáið frá mér. Lofa.
Þarf ekki nema ca. 2 manneskjur til að hætta við að kjósa xP og xJ til að það falli 6 vinstri þingmenn út og í stað koma 6 mið/hægri þingmenn
Ég sá einn sem ætlaði að kjósa samfylkinguna því það 'hámarkaði líkur á vinstri stjórn'?
Samfylkingin gæti grætt, hvað, +0,2%? Á kostnað 6 vinstri þingsæta?
Okkur er að fjölga svo mikið svo deili þessu af facebook bara hér líka! Smá hvatning til að kjósa
🏳️⚧️🩵🩷🤍🩷🩵🏳️⚧️
💜🏴☠️💜🏴☠️💜🏴☠️💜
Skjáskot af Facebook-pósti frá mér: Af hverju kýs ég Pírata? Ég kýs Pírata vegna þess að ég vil að mannréttindi allra séu virt og Píratar eru eini flokkurinn á þingi sem hefur barist fyrir því á liðnu kjörtímabili. Ég kýs Pírata vegna þess að spilling og frændhygli eru raunveruleg vandamál sem kosta samfélagið gríðarlega mikið, fjárhæðir sem hægt væri að nýta til að bæta samfélagið fyrir almenning. Ég kýs Pírata vegna þess að valdaflokkarnir þurfa frí og Píratar eru eini flokkurinn sem hefur útilokað samstarf við Sjálfstæðis- og Miðflokkinn. Ég kýs Pírata vegna þess að Píratar eru með bestu umhverfis-, loftslags-, dýraverndunar- og hinseginstefnurnar og hafa, ólíkt öðrum flokkum sem kenna sig við þessi málefni, beitt sér fyrir róttækum aðgerðum í þeim efnum og viðhaft virkt samráð, til dæmis við Trans Ísland. Enginn stjórnmálaflokkur hefur á undanförnum árum staðið eins þétt með trans fólki og verið TÍ jafnmikið innan handa og Píratar. Ég kýs Pírata vegna þess að ég hef aldrei séð eftir atkvæði mínu þangað. Það sama gæti ég ekki sagt hefði ég kosið einhvern annan flokk, en þeir flokkar sem ég annars ætti að geta samsamað mig við hafa farið af sporinu, til dæmis með því að greiða ekki atkvæði gegn því að þrengja réttindi fólks á flótta. Kæru vinir og fjölskylda, kjósum öðruvísi á morgun. Kjósum mannréttindi, kjósum breytingar, kjósum frjálslyndi og félagshyggju, kjósum heiðarleika og vönduð vinnubrögð. Kjósum Pírata. 💜🏴☠
💜🏴☠
29.11.2024 15:19 — 👍 20 🔁 4 💬 0 📌 0„Svo teiknar hann flóttafólk og innflytjendur upp sem stórkostlega ógn við okkar innviði, fólk sem er ógn við þessa innviði er fólk sem borgar ekki til samfélagsins, við erum að verða af hundruðum milljarða út af skattsvikum 1/2
28.11.2024 23:39 — 👍 41 🔁 8 💬 1 📌 1Þ. Sunna: Píratar standa vörð um auðlindir landsins og vilja innleiða nýja stjórnarskrá sem tryggir að auðlindir séu í þjóðareign. Það er mikilvægt að styðja við unga bændur, mikilvægt að halda landinu í rækt og hlúa að sjálfbærum landbúnaði. Þurfum líka að horfa til fleiri staða -
#kosningar #x24
þar sem erlendir aðilar eru að ásælast okkar dýrmætu auðlindir. T.d. stóriðjustefnuna sem mengar gríðarega mikið, sem mun kosta okkur til lengri tíma í skertum lífsgæðum og verra ástandi í loftslagsmálum.
Fiskeldi í opnum sjókvíum er að leggja lífríki sjávar í gríðarlega hættu.
#kosningar24
Þ. Sunna: Fyrsta sem þarf að gera er að viðurkenna það neyðarástand sem nú ríkir á húsnæðismarkaði og fara í bráðabirgðaaðgerðir.
16% af öllu húsnæði á höfuðborgarsvæðinu er í skammtímaleigu - þetta er bara orðinn bisness.
Það þarf að fara í uppbyggingu á húsnæði.
#kosningar24 #x24
Samanburður Sólarinnar fyrir 2024 er kominn út. Skemmst frá því að segja að Píratar eru með LANG öflugustu loftslagsstefnuna.
solin2021.is
Ef umhverfis- og loftslagamál eru þér hjartansmál (sem þau ættu að vera hjá okkur öllum), þá er mér ánægja að segja að @piratar.bsky.social eru efst í Sólinni, kvarða Ungra umhverfissinna enn eitt árið, og hafa bætt við sig heilum 10 stigum milli ára. Kjóstu framtíðina, kjóstu Pírata! 🌻🌞💜
23.11.2024 16:28 — 👍 25 🔁 6 💬 0 📌 2„Við Píratar höfum sett afglæpavæðingu á oddinn
Eitt stærsta heilbrigðismálið er að við hættum að líta á vímuefnanotendur sem glæpamenn heldur taka þau í mjúkan faðminn og hjálpa þeim.”
- @andresingi.bsky.social
„Vinstri græn eru að reyna að hræða okkur með hægri ríkisstjórn þegar þau hafa verið í hægri stjórn í 7 ár. Píratar gefa ekkert eftir í prinsippum!
Við munum aldrei gefa eftir umhverfisráðuneytið til Guðlaugs Þórs (xD)
Sameinum almennilega græna frjálslynda ríkisstjórn!”
- @andresingi.bsky.social
til samfélagsins. Það er ekki botnlaus hít að setja fjármagn inn í kerfið. Við verðum að fjármagna kerfið betur þegar kemur að launum starfsfólks. Við þurfum fólk til að sinna eldra fólki, lækna fólk og sinna börnunum okkar. Þetta er fjárfesting sem kemur margfalt til baka.
#kosningar24 #x24