Fólk sem er með leiðindi, tuð eða dónaskap við fólk í þjónustustörfum á skilið að fá glersalla út í jólamatinn sinn
Ég las að fólk ætti alltaf að gefa öllum í húsinu smá
Mig dreymdi í nótt að ég væri að lesa viðtalsbók við handboltamenn og allar spurningarnar voru svona: Hvaða rakspíra notarðu? Ertu á lausu? Afhverju ertu svona sætur? Og svo athugaði ég hver tók viðtölin og það var @kamillae.bsky.social
Nákvæmlega svona verður einmitt íþróttapodcastið mitt!
Frekar en að deila hér á þessu forriti vinsælustu tvítunum, hvernig væri að sjera því sem við vorum mest cancel-uð fyrir?
Minnir mig á Asahi Flame í Tokyo
Óþolandi og asnaleg herferð! Brjálast þegar ég sé þetta
WTF! Hvað er Þjóðminjasafnið að spá?
Ég er búin að vera að fá email um viðburð sem ég verð á í nóvember og ég fæ bara magasár af skuldbindingarkvíða yfir því að vera með eitthvað planað svona langt fram í tímann.
Hvað ef ég ákveð að byrja nýtt líf á Mallorca? Geng í sérstrúarsöfnuð á Egilstöðum? eða kaupi mér skútu í millitíðinni?
einu sinni fékk ég að heyra sögu af því þegar einhver þurfti að smygla mömmunni með sér til útlanda, var rosalegt, en viðkomandi hefði frekar sleppt því að fara en að þurfa að skilja mömmuna eftir
Bara nokkrir dagar í leikinn gegn Chelsea! Þá verður allt logandi hérna!
What? Ég labba sko alltaf bara í burtu þegar þau byrja, en þetta er rosalegt
Ég er að vinna með súrdeigsóðu fólki og stundum sýna þau hvort öðru vídjó sem þau taka af deigunum sínum að lyfta sér og horfa á þetta alveg skjálfandi af spennu
Lífið er ekki keppni og við deyjum öll. Þægindarammi er ekki heldur til og við erum alltaf vafrandi inn og útúr einhverjum óþægindaramma. Nei, ég segi nú bara svona, krakkar.
Ég beið í klukkutíma eftir að vatna færi að sjóða i potti hjá mér. Kom í ljós að ég kveikti ekki á hellunni.
Ákveðinn lágpunktur hjá mér að ráða ekki einu sinni við það að sjóða vatn
Æ en leiðinlegt að heyra. Hræðilegt að heyra að þessi mávur hafi lent í þessu. Ég vildi að hann hefði komið til mín
Eitt af mörgu sem ég elska við að búa við sjóinn í miðbænum er návígið við mávana. Þetta er klárir og fallegir fuglar sem við erum heppin að hafa í kringum okkur #TeamMávar
Þetta er svo ógeðslega fyndið! Tvær manneskjur búnar að senda mér í morgun, við öll í kasti
Er líka Livepool samfélag hér? JESS! Þá er ég til í þetta!
JÁ! Það er alveg gat á á fótbolta podcast markaðnum sem við gætum fyllt upp í.
Við myndum örugglega taka handbolta líka, erum með sambönd þar.
Ég er svo spennt að vinna í frasabókinni: vera með okkar svona: "Aldrei vekja mig" og þannig til að segja oft í hverjum þætti!
En ísfirsku mæðgurnar sem þú svafst einu sinni hjá sömu helgi? Eru þær hérna
Get loksins byrjað að segja allt sem mér finnst um fótbolta