James Talarico virðist vera ágætur kostur gegn Trump. Það er þó sorglegt hvernig hann nefnir alla sundrung sem reynd er nema kynhneigð. Ekki að það komi mér sérstaklega á óvart þar sem hann er trúaður kani frá Texas.
Hahaha, nei. Held ég læri að borða svona svo ég eigi eitthvað heima sem honum finnst ekki gott. 🤣
Ég keypti í matinn á netinu og sá þessa fínu skvísu með bönunum og eplum. Keypti tvær og hugsaði með mér að þetta yrði fínt í vinnuna...
Svo hringir kærastinn í mig og spyr: „Jóel, af hverju varstu að kaupa barnamat?”
Skemmst er frá því að segja að nýbakað foreldri á vinnustaðnum fær þetta.
Ég segi fyrrgreint til að segja þetta:
Á síðasta ári byrjaði ég að læra eftirfarandi:
\Að gera við síma
\Á shell/bash í Linux
\Pólsku
\Rússnesku
\Japönsku
\Um dreifingu útvarpsbylgna (hvernig ég get rænt útvarpssendingu)
\Að vera sjálfsöruggari
Flest er lagst í dvala. Sumt er ég enn að læra.
Ef ég væri ofurhetja....
Ég væri með ofurhraða lærdómsgetu og einlægan áhuga á nánast öllu undir sólinni.
Ég gæti komið lygilega mörgu í verk á stuttum tíma.
Hinsvegar myndi ég missa áhuga á hlutum mjög hratt.
Ég myndi detta í löng tímabil verkleysis og þunglyndis. (Myndi sofa af mér bruna Rómar).
Ég er svo mikill vinnualki... að ég sit heim kl. 11 á mánudegi og kynni mér vinnustaðinn (sendi líka fyrirspurnir á menn sem vita meira og reyni að gera gagn...)
Ég lifi ekki heilbrigðu lífi þegar kemur að aðskilnaði persónulífs og atvinnulífs.
Ef foreldrar ykkar eiga ekki rafmagnsbíl og vilja fá ykkar lánaðan, ekki lána þeim hann. Mikilvæg lexía í veikindum að þurfa að verða stína símalína og kenna þeim á hleðslustöðvar.
Óttinn við áhrif km. gjalds er látinn óafskiptur í síldinni… #kryddsíld
Þarf Simmi alltaf að reyna að valda sundrung? #kryddsild
Kvikmyndina XXX (2002) er vel hægt að þröngva inn í rökkurmyndahefðina (þá sem nýrökkurmynd) ef hafður er viljinn fyrir verkið.
Ég er altaf að fá bremsuför.. er það eitthvað sem fylgir aldrinu eða?
ég bað Siri um að pegga mig (á ensku) og hún setti bara lagið ME! með Taylor Swift á... Það er vissulega andleg peggun en ólíklegt að ég fái fullnægingu þannig.
Nú er ég kominn yfir mín spretthörðustu ár en ef ég væri ekki orðinn dannaður þá myndi ég efna til fjölmennra mótmæla á skrifstofum Trygginga og Ráðgjafar (Sóltún 26), mæta með egg og hveiti og leika þar lausum hala! Sýna þessu liði hvernig við tökum á svikahröppum. En ég er gamall.
Lausn á vandanum við orkuskiptin í þremur orðum: Loka einu álveri.
(Hvað með öll störfin!!! Fólk finnur önnur störf hjá vinnuveitendum sem borga skatta hér!)
Smásaga með eftirfarandi þemu:
Menschheitsdämmerung
Die Schrei der Natur
Die grossen blauen Pferde
Weltende
Fin de siècle
Ást
Missi
Listamanninn sem sjáanda (samt ekki)
Mannsandann
Það mætti segja að ég ætli mér margt með <7.500 orðum.
Í framhaldi af umræðu minni um aðskilnaðarkvíða þá er gott að komast að því upp úr þrítugu að ég hef ekkert þroskast frá barnsaldri (grátur við aðskilnað frá móður að morgni leikskóladags og að eftirmiðdegi við brotthvarf úr leikskóla)
Ég hef jafnað mig en get notið þess að vita hve heitt ég elska.
Makinn er að eiga kvöldstund með hans bestu vinkonuí kvöld. Ég er svo ánægður fyrir hans hönd á sama tíma og aðskilnaðarkvíðinn minn er kominn upp í topp. Ég lifi samt af, enda sé ég hann á morgun. (Það er þrátt fyrir heimsendahugsanir... Ég klýf eld og brennistein til að sjá hann ef með þarf).
Vinnualkinn ég sit heima og hugsa um það sem ég vil klára á mánudaginn. Liggur við að mig langi að mæta á morgun bara til að létta fyrir mánudeginum. 🤫
Ég er spenntur að smakka tómatana
get látið þig hafa vatn úr fiskabúrinu. algjört secret sauce. svo eru full spectrum ljósin að gera mikið líka.
Fallegi afleggjarinn frá elsku @hallakol.bsky.social er 🌟THRIVING🌟😍
Júlíus Viggó hljómar eins og fínasta viðhald fyrir Guðrúnu Hafsteins. Vona innilega að þetta gangi allt að óskum þarna í Valhöll.
Lífi mínu er lifað sem hinn heppni klaufabárður sem álpast ávallt inn um rétta hurð. Mikil og fjölbreytt óheppni vissulega, á mörgum skeiðum, en aldrei svo mjög að líf mitt batni ekki með hverju árinu.
13 manna rúta brunar á esjubrautinni með bílstjóra sem heldur að hann sé í rallíkeppni. Við, farþegarnir, tjillum. Enda allir á launum.
Hryllilegt að uppgötva það að sumir vina manns séu bara á því að Charlie Kirk hafi eitthvað til síns máls. Rökræður næstu hittinga verða áhugaverðar.
Ný uppáhaldssetning: “the author is now a communal fetish.”
Takk fyrir. Getur lesið þetta á facebook hjá mér. Ég fer mikinn.
Ég asnaðist til að skrifa heillangan pistil um muninn á verndun tungumálsins og þess að vera rasískt fífl. Endaði svo á að tagga Snorra Másson, gera það public og líkja honum bæði við Charlie Kirk og Goebbels. Allt í allt afkastamikill og góður morgun.
Kaldhæðnislega við að Jón Gnarr láti borgarstjórn sína horfa á The Wire er að hann er basically Mayor Carcetti. Kominn á þing, hringekjan snýst áfram...
Svo ég haldi áfram að leggja Stefán Einar í einelti (skiljiði einar, einelti, haha) þá er um að gera að nefna það að hver einasta setning sem úr honum kom í þessu „viðtali” á Bylgjunni hrópaði það að hann væri að vinna fyrir Moggann. Illa lyktandi puttabrúðufnykurinn af honum öskrar Davíð Oddsson.