Hélt að tillaga Sjálfstæðisflokks um aukna jarðgangnagerð í Reykjavík væri aprílgabb en gott og vel. Fyrst svo er ekki er í öllu falli gott að hafa þetta í huga, því jarðgangnagerð GÆTI alveg verið spennandi!
Meiri byggð, meira mannlíf! Minna af offramboði af nöldurseggjum sem finnst bílastæði mikilvægara en fólk!
Klukkutíma langt myndband með Not Just Bikes um sjálfakandi bíla og alla ágallana á þessari fantasíu um slík farartæki leysi öll samgöngumál í borgum. Deilið þessu með öllum milljarðamæringum á Ísafirði sem þið þekkið.
Heyrðu, magnað. Allar skandinavískar borgir af svipaðri stærðargráðu og höfuðborgarsvæðið; Álaborg, Uppsala, Þrándheimur, Óðinsvé, Stavanger, Bergen, Árósar, Tampere, Turku og Oulu hafa allar ákveðið að hætta með almenningssamgöngur og veðja á sjálfakandi bíla.
Hahahaha, NOT!
Ég heiti Björn og þetta er mitt framlag.