Fanney Benjamínsdóttir's Avatar

Fanney Benjamínsdóttir

@fanney.bsky.social

64 Followers  |  36 Following  |  30 Posts  |  Joined: 29.07.2023  |  1.414

Latest posts by fanney.bsky.social on Bluesky


Ein spurning sem brennur á mér í þessu Pho Vietnam máli. Má bara hver sem er taka upp föðunafnið Viðarsson? Er engin krafa gerð um að pabbi þinn heiti Viðar?

16.04.2024 14:38 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0

Ég 2018, nýbúin að fæða barn: Úff. Þetta ætla ég aldrei að gera aftur.

Ég 2024, algerlega firrt: Ég ætla að fæða barn aftur! Og í þetta skiptið ætla ég að gera það í Afríku 😀

29.02.2024 06:48 — 👍 3    🔁 0    💬 0    📌 0

Þarna grínið með að pakka nærfötum fyrir ferðalag eins og þú ætlir að kúka í buxurnar mjög oft nema þú býrð í Afríku svo það er ekki grín heldur heilbrigð varúðarráðstöfun.

09.01.2024 11:41 — 👍 3    🔁 0    💬 0    📌 0

Amma (f 1939) er mætt til Kenía. Tók uber í fyrsta sinn í dag, eða húbert eins og hún kallar það.

19.12.2023 16:46 — 👍 4    🔁 0    💬 0    📌 0

Mér finnst þumalputtareglan vera sameiginleg gjöf fyrir babyshower, ég mæti svo með mat fyrir nýbakaða foreldra þegar mér er boðið að kynnast hvítvoðungi og skírnargjöf ef það er skírn. Finnst þær samt vera frekar fáar einmitt nú til dags. Þetta er yfirleitt ein gjöf + lasagne hahah.

07.12.2023 11:57 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0

Hef aldrei heyrt um gjafir í kynjaveislum, en fólkið í kring um mig hefur blessunarlega verið lítið í þeim reyndar.

Ég fékk nokkrar sængjurgjafir á sínum tíma, en það var eldri kynslóðin meira, frændfólk sem mætti í heimsókn með einhver föt á barnið. Held samt að það sé enginn að búast við því.

07.12.2023 11:54 — 👍 1    🔁 0    💬 2    📌 0

Mamma besta vinar sonar míns á leikskólanum er súdönsk. Hún spurði mig um daginn hvort ég kannaðist við uppahalds þættina hennar úr æsku, ‘Nonny and Manny’

04.12.2023 07:44 — 👍 6    🔁 0    💬 0    📌 0

Sonur minn settist í fangið á mér í morgun, faðmaði mig og sagði „mamma, það er svo góð lykt af þér”
Ég: Já er það?
Hann: Nei, reyndar ekki. Ég sagði þetta bara því ég elska þig.

Hér er vegið að.

20.11.2023 18:10 — 👍 5    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image

Var að fá póst frá leikskólanum um að það verði lokað á mánudaginn. Ríkisstjórnin var nefnilega að taka smá spontant ákvörðun um að hafa frídag. Miklu betra að fólk sé bara að planta trjám þann dag. Akkúrat.

08.11.2023 08:10 — 👍 3    🔁 0    💬 0    📌 0

Eitt með Kenía sem ég brenni mig alltof oft á er að ef þú reynir að biðja um drykk með ‘oat milk’ á kaffihúsi eru yfirgnæfandi líkur á að þú fáir goat milk, sem er alls ekki það sama.

03.11.2023 14:45 — 👍 4    🔁 0    💬 0    📌 0

Þörfin fyrir kók úr vél hefur verið svo ótrúlega sterk á þessari meðgöngu en það er bara ekki konsept í Nairobi. Bara ekki hægt. Er að drekka heimabrugg núna (sódavatn í dósakók).

31.10.2023 12:23 — 👍 2    🔁 0    💬 0    📌 0

Læknirinn minn var að setjast við hliðina á mér á biðstofunni á læknavakt. Hún er líka að bíða eftir að hitta lækni. Ég hef aldrei upplifað viðlíka hlutverkaspennu.

30.10.2023 09:47 — 👍 4    🔁 0    💬 0    📌 0

Hver dagur er sannarlega ævintýri

24.10.2023 10:08 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0

Ég er búin að búa í húsinu mínu í 12 mánuði og var að nota eitt klósettið í fyrsta sinn rétt í þessu. Á enn eitt eftir.

24.10.2023 10:04 — 👍 5    🔁 0    💬 1    📌 0

Ég er að labba meðfram ströndinni í Dubai. Í staðinn fyrir að reyna að selja mér sólgleraugu eða kókoshnetur er allt strandfólkið eitthvað „hello ma’am, property investment?”

17.10.2023 15:37 — 👍 3    🔁 0    💬 0    📌 0

Ég gerði mistök og útskýrði fyrir syni mínum að óléttar konur eigi ekki að drekka áfengi. Nú hrópar hann „mamma nei! settu niður bjórinn!” í hvert skipti sem ég tek sopa af einhverju í dós.

17.10.2023 13:53 — 👍 5    🔁 0    💬 0    📌 0

Sónarmyndir og minningagreinar. Mjög undarlegt.

14.10.2023 18:10 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0

Fjögurra ára sonur minn var að sjá miðaldra hvítan mann in the wild i fyrsta sinn i smá tíma. Fór að hlæja og sagði ‘þessi lítur út fyrir að heita bara eitthvað, Siggi.’ Negldi þessa greiningu eiginlega.

13.10.2023 11:30 — 👍 9    🔁 0    💬 1    📌 0

Konan sem þrífur hjá okkur elskar að segja mér hvað henni finnst um útlit mitt í hvert sinn sem við hittumst. Í dag þykir henni ég líta út eins og ‘a fourteen year old little girl’. Þetta eru miklar framfarir frá síðustu viku (vil ekki tala um það).

11.10.2023 10:32 — 👍 8    🔁 0    💬 0    📌 0

Í morgun sá eg mann með þrjá farþega á mótorhjólinu sínu. Þetta kann að hljóma hversdagslega, nema það er tvist! (allir farþegarnir voru svín)

20.09.2023 06:21 — 👍 6    🔁 0    💬 0    📌 0

Enn og aftur í tuk tuk á malarvegi. Enn og aftur í engum brjóstahaldara. Life comes at you fast.

16.09.2023 12:50 — 👍 3    🔁 0    💬 0    📌 0

Þetta virka allt eins og mjög handahófskenndar aðgerðir, en hvað veit ég? (Ekkert, því ég tala ekki Kiswahili og that’s on me)

08.09.2023 07:22 — 👍 2    🔁 0    💬 0    📌 0

Ég er svo oft í algerum trust the process aðstæðum hérna. Nú er garðyrkjumaðurinn okkar með einhvern mann hérna heima. Þeir eru búnir að taka í sundur þurrkarann, láta baðvatnið renna mjög lengi (enginn tappi) og fara með moppu upp á háaloft. Ég veit ekkert afhverju þetta er að gerast.

08.09.2023 07:21 — 👍 7    🔁 0    💬 1    📌 0
Post image

Svo næs að búa í afríku. Tannbursta sig, fá sér kaffi, sjóða hrísgrjón. Láta svo renna í bað og átta sig á því að þetta er liturinn á kranavatninu í dag.

05.09.2023 16:17 — 👍 6    🔁 0    💬 0    📌 0

Tengdamóðir mín var að senda mér skilaboð og óska mér til hamingju með fyrsta brúðkaupsafmæli okkar Péturs. Þannig lærði ég núna (klukkan 21.13, pizzasneið í hönd) að við eigum sannarlega brúðkaupsafmæli í dag. Jæja.

27.08.2023 18:16 — 👍 8    🔁 0    💬 1    📌 0

Keypti nýlega appelsínusafa af Sómala í Nairobi sem tilkynnti mér að hann héldi með Víkingi í íslensku deildinni. Eina vitið sagði ég bara.

12.08.2023 17:48 — 👍 4    🔁 0    💬 0    📌 0

:(

02.08.2023 12:10 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Post image Post image Post image Post image

Pælið í þessari þjóðargersemi

02.08.2023 12:10 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0

Það hlýtur að vera smá sorglegt að vera íslenskur grínisti og þurfa að fara í gegn un lífið vitandi að hvað sem þú gerir verðurðu aldrei fyndnari en Dorrit Moussaief.

02.08.2023 12:05 — 👍 2    🔁 0    💬 2    📌 0
Post image

Veskið mitt er búið að vera týnt í þrjár vikur og eg er búin að snúa lífinu á hvolf við leitina. Í dag fékk ég símtal frá starfsmanni sorpu sem hafði fundið það. Ég sem sagt henti veskinu minu í ruslið.

31.07.2023 16:16 — 👍 6    🔁 0    💬 0    📌 0

@fanney is following 19 prominent accounts