Áslaug Jónsdóttir's Avatar

Áslaug Jónsdóttir

@aslaugjons.bsky.social

Bókverkakona, teiknari, rithöfundur, hönnuður | Visual artist, writer, illustrator, graphic designer.

10 Followers  |  19 Following  |  26 Posts  |  Joined: 19.02.2025  |  1.4896

Latest posts by aslaugjons.bsky.social on Bluesky

Ísing | All ice … Hrímaðar föstudagsmyndir: Það er fallegt en kalt á landinu bláa þessar vikurnar. Og kuldinn kemur víða að. Heimsfréttirnar vekja ugg og fáránlega neikvæð hugrenningatengsl við ís. „Þetta er nú bara klakastykki,“ sagði ófétið um Grænland. Og hryllingurinn sem ICE-liðar stunda ætti að vera okkur öllum viðvörun: það sama getur gerst alls staðar. Ekkert samfélag er ónæmt. Smithættan frá öfgahreyfingum eins og MAGA er hættulegri en nokkur pest.

Ísing | All ice …

Hrímaðar föstudagsmyndir: Það er fallegt en kalt á landinu bláa þessar vikurnar. Og kuldinn kemur víða að. Heimsfréttirnar vekja ugg og fáránlega neikvæð hugrenningatengsl við ís. „Þetta er nú bara klakastykki,“ sagði ófétið um Grænland. Og hryllingurinn sem ICE-liðar stunda ætti…

13.02.2026 15:46 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Skrímsli í lestinni! | Monster on the train! Skrímsli í Noregi: Leikkonan Adele Duus hefur farið víða með brúðuleikverkið sem hún samdi upp úr bókinni Skrímsli í heimsókn. Nýverið fór hún svo með nýtt verk, Monstertog (Skrímslalest) sem hún sýndi í lestarferð á milli Skien og Tönsberg í tengslum við norsku brúðuleikhúshátíðina Figurfestspillene. Hér er norska kynningin á verkinu: MONSTERTOG – LYS LEVENDE ADELE Figurspiller Adele Lærum Duus bringer tre monstre inn i VYs vogner.

Skrímsli í lestinni! | Monster on the train!

Skrímsli í Noregi: Leikkonan Adele Duus hefur farið víða með brúðuleikverkið sem hún samdi upp úr bókinni Skrímsli í heimsókn. Nýverið fór hún svo með nýtt verk, Monstertog (Skrímslalest) sem hún sýndi í lestarferð á milli Skien og Tönsberg í tengslum…

13.02.2026 15:38 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Vetrarbirta | Winter light Föstudagsmyndir: Í stillum og blíðviðri undanfarnar vikur hefur verið mikið yndi ef ekki hrein sáluhjálp að horfa til himins. Sólin speglaði sig líka í stórstraumsfjöru og ísuðum Melabökkunum í byrjun árs. Friday photos: Winter in Iceland: we have been blessed with good weather the first weeks of the new year 2026. In the calm and gentle weather it has been a true pleasure to enjoy the light and the colors of the sky.

Vetrarbirta | Winter light

Föstudagsmyndir: Í stillum og blíðviðri undanfarnar vikur hefur verið mikið yndi ef ekki hrein sáluhjálp að horfa til himins. Sólin speglaði sig líka í stórstraumsfjöru og ísuðum Melabökkunum í byrjun árs. Friday photos: Winter in Iceland: we have been blessed with good…

16.01.2026 12:51 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Ofbeldi í nánum samböndum | Domestic Violence Pælt í janúar. Það er bæði áhugavert og hrollvekjandi að fylgjast með heimsmálunum. Nærtækust eru mál nágranna okkar í Grænlandi. Bandaríkjaforseti hótar yfirtöku og reynir hvað hann getur til að sprengja Atlantshafsbandalagið, ugglaust til að þóknast vini sínum í Rússlandi sem hvíslar að honum góðum hugmyndum. Því annars verður ormafyllt haughúsið undir forsetanum opnað. Báðir eiga svo valdagræðgina og drambið sameiginlegt.

Ofbeldi í nánum samböndum | Domestic Violence

Pælt í janúar. Það er bæði áhugavert og hrollvekjandi að fylgjast með heimsmálunum. Nærtækust eru mál nágranna okkar í Grænlandi. Bandaríkjaforseti hótar yfirtöku og reynir hvað hann getur til að sprengja Atlantshafsbandalagið, ugglaust til að þóknast…

15.01.2026 11:04 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Áramótakveðja! | Farewell 2025! Happy new year 2026! Árið kvatt. Var árið 2025 gott ár? Fyrir jarðarbúa í heild telst árið varla gott. Stríðin geisa sem aldrei fyrr. Evrópa er að vígbúast. Valdasjúkir og siðblindir stjórnarherrar hafa allar klær úti til að halda í illa fengin völd. Ef lýðurinn er ekki að dauða kominn í flóttamanna- eða þrælabúðum af einhverju tagi, þá er andlegt ástand hinna ekki beisið: megnið af hinum frjálsa lýð er undir álögum neyslu og netfíknar.

Áramótakveðja! | Farewell 2025! Happy new year 2026!

Árið kvatt. Var árið 2025 gott ár? Fyrir jarðarbúa í heild telst árið varla gott. Stríðin geisa sem aldrei fyrr. Evrópa er að vígbúast. Valdasjúkir og siðblindir stjórnarherrar hafa allar klær úti til að halda í illa fengin völd. Ef lýðurinn er…

31.12.2025 16:28 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Vetrarsólhvörf 2025 | Winter solstice Sólstöður: Það þarf að gera talsverða leit að sólarljósi í votviðrinu á stysta degi ársins. Daufur roði ýjar að lágum geislum sólar á bak við skýhuluna. Samkvæmt almanakinu voru vetrarsólstöður klukkan 15:03 í dag, sunnudaginn 21. desember. Dagsbirtu nýtur í 4 klst og 9 mín í Reykjavík. Á morgun fer daginn að lengja og því fögnum við með jólagleði. Solstice: …

Vetrarsólhvörf 2025 | Winter solstice

Sólstöður: Það þarf að gera talsverða leit að sólarljósi í votviðrinu á stysta degi ársins. Daufur roði ýjar að lágum geislum sólar á bak við skýhuluna. Samkvæmt almanakinu voru vetrarsólstöður klukkan 15:03 í dag, sunnudaginn 21. desember. Dagsbirtu nýtur í 4…

21.12.2025 16:34 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Svif | Too blue to be true? Föstudagsmyndin – á ferð: Strandlína Miðjarðarhafsins er óvíða girt himinháum hótelbyggingum, sem standa eins og hamrabelti við sjóinn. Það kunna mávar að nýta sér.  Friday photo – travels: In so many places along the coastline of the Mediterranean Sea, huge hotels guard the shore like steep cliffs. There a lone seagull likes to soar. Ljósmyndin tekin | Photo date:24.10.2025

Svif | Too blue to be true?

Föstudagsmyndin – á ferð: Strandlína Miðjarðarhafsins er óvíða girt himinháum hótelbyggingum, sem standa eins og hamrabelti við sjóinn. Það kunna mávar að nýta sér.  Friday photo – travels: In so many places along the coastline of the Mediterranean Sea, huge hotels…

14.11.2025 16:01 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Skrímsli á ferð | Monsters on the move Tilnefning í Eistlandi: Góðar fréttir berast frá Eistlandi en þar hefur „Ei! ütles väike koll“ eða þýðingin á „Nei! sagði litla skrímslið“ verið tilnefnd til virtra þýðingarverðlauna sem eistneska deild IBBY samtakanna sendur fyrir. Verðlaunin nefnast Paabeli Torn (Babelsturninn) og heiðra bestu þýddu barnabækurnar á eistnesku. Verðlaunin verða nú veitt í 22. sinn. Tilnefningarnar skiptast í tvo flokka: myndabækur og textabækur eða kaflabækur, en alls eru tíu titlar tilnefndir.

Skrímsli á ferð | Monsters on the move

Tilnefning í Eistlandi: Góðar fréttir berast frá Eistlandi en þar hefur „Ei! ütles väike koll“ eða þýðingin á „Nei! sagði litla skrímslið“ verið tilnefnd til virtra þýðingarverðlauna sem eistneska deild IBBY samtakanna sendur fyrir. Verðlaunin nefnast Paabeli…

07.11.2025 13:27 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Litir í grasagarði | Autumn colours Föstudagsmyndin: Lauftré standa nú flest nakin og fyrsti bylur ársins kom með miklu fannfergi í lok október. En svo koma blíðari dagar og þá er náttúran endalaus uppspretta fegurðar, fjölbreyttra forma og litbrigða. Friday photo: Most of the deciduous trees are now bare, and the first snowstorm of the year brought us enormous amount of snow at the end of October. But then the milder days come, where nature is an endless source of beauty, shapes and colours. Ljósmyndin tekin | Photo date:19.10.2025

Litir í grasagarði | Autumn colours

Föstudagsmyndin: Lauftré standa nú flest nakin og fyrsti bylur ársins kom með miklu fannfergi í lok október. En svo koma blíðari dagar og þá er náttúran endalaus uppspretta fegurðar, fjölbreyttra forma og litbrigða. Friday photo: Most of the deciduous trees are…

07.11.2025 12:56 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Hlaðvarpsþáttur frá Berlín | Klein aber groß – Play Nordic Myndabókaspjall: Norrænu sendiráðin í Berlín standa fyrir hlaðvarpinu PLAY NORDIC og í tengslum við sýninguna „Klein aber Groß“, sem opnaði 17. júlí s.l. í félagsheimili Norrænu sendiráðanna: Felleshus, voru tekin viðtöl við nokkra þátttakendur. Þátturinn er nú komin í útsendingu og má finna á heimasíðu sendiráðanna hér: Play Nordic – og á Spotify, Apple Podcasts og víðar. Viðmælendur eru sýningarstjórinn Johanna Stenback og höfundarnir…

Hlaðvarpsþáttur frá Berlín | Klein aber groß – Play Nordic

Myndabókaspjall: Norrænu sendiráðin í Berlín standa fyrir hlaðvarpinu PLAY NORDIC og í tengslum við sýninguna „Klein aber Groß“, sem opnaði 17. júlí s.l. í félagsheimili Norrænu sendiráðanna: Felleshus, voru tekin viðtöl við nokkra…

19.09.2025 10:28 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Fjallasýn | Mountain view Gluggaveðrið: Föstudagsmyndin hér ofar er frá því í júlí, möguleg tekin í gosmistri. Örnefnin eru til dæmis: Hafnardalur, Gildalur, Gildalstunga, Skaradalur, Katlaþúfur, Katlar, Hróar, Ölver út um glugga neðar. Í dag sést ekki til fjalla því þykk skýjatjöld ná niður í fjallsrætur. „Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla.“ Það má nú efast um það. Friday photo: Above: photo since late in July.

Fjallasýn | Mountain view

Gluggaveðrið: Föstudagsmyndin hér ofar er frá því í júlí, möguleg tekin í gosmistri. Örnefnin eru til dæmis: Hafnardalur, Gildalur, Gildalstunga, Skaradalur, Katlaþúfur, Katlar, Hróar, Ölver út um glugga neðar. Í dag sést ekki til fjalla því þykk skýjatjöld ná niður í…

15.08.2025 13:22 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Botnsdalur og berjamór | Hikes in August Síðsumar: Ég gekk að Glym í Botnsdal í góðum félagsskap í vikunni sem leið. Við gengum upp aflíðandi hryggina í NV-hlíðum dalsins, milli Hraunhellisgils og Svörtugjár og komum þar að fossinum ofarlega. Óðum ánna fyrir ofan fossinn eins og fara gerir og svo niður gönguleiðina SA-megin gljúfursins. Sú leið er brött og hrikaleg en stígar víða hlaðnir tröppum og með haldreipum.

Botnsdalur og berjamór | Hikes in August

Síðsumar: Ég gekk að Glym í Botnsdal í góðum félagsskap í vikunni sem leið. Við gengum upp aflíðandi hryggina í NV-hlíðum dalsins, milli Hraunhellisgils og Svörtugjár og komum þar að fossinum ofarlega. Óðum ánna fyrir ofan fossinn eins og fara gerir og svo…

09.08.2025 10:42 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Stórt og smátt í Berlín | Klein aber groß – exhibition opening Sýningaropnun: Það var gaman að taka þátt í gleðinni í Berlín við opnun sýningarinnar „Klein aber Groß“ sem opnaði fimmtudaginn 17. júlí í félagsheimili Norrænu sendiráðanna: Felleshus. Opnunin var vel sótt af ungum sem öldnum og áhugi á norrænum myndabókum mikill og einlægur. Uppsetning verka og kynning var vel heppnuð en sýningarstjórinn, Johanna Stenback, bar hitann og þungan af vinnunni ásamt arkitekt sýningarinnar Mia-Irene Sundqvist og grafíska hönnuðinum Andrei Palomäki.

Stórt og smátt í Berlín | Klein aber groß – exhibition opening

Sýningaropnun: Það var gaman að taka þátt í gleðinni í Berlín við opnun sýningarinnar „Klein aber Groß“ sem opnaði fimmtudaginn 17. júlí í félagsheimili Norrænu sendiráðanna: Felleshus. Opnunin var vel sótt af ungum sem öldnum og áhugi…

21.07.2025 12:06 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Skrímslin í Berlín | Klein aber groß – exhibition in Berlin Sýning: Sendiráð Norðurlandanna í Berlín efna til sýningar á barnabókum og myndlýsingum í Felleshus, sýningarrými og samfélagshúsi Norðurlandanna þar í borg. Sýningin opnar 17. júlí og sendur til 5. október 2025. Skrímslin verða þarna í góðum félagsskap en á sýningunni eiga eftirtaldir höfundar verk: Emma AdBåge (SE), Kjell Aukrust (NO), Linda Bondestam (FI), Amanda Chanfreau (AX), Rán Flygenring (IS), Anna Jacobina Jacobsen (DK), Tove Jansson (FI), Áslaug Jónsdóttir (IS), Maria Bach Kreutzmann (GL), Gry Moursund (NO), Bárður Oskarsson (FO), Jakob Martin Strid (DK) og Stina Wirsén (SE).

Skrímslin í Berlín | Klein aber groß – exhibition in Berlin

Sýning: Sendiráð Norðurlandanna í Berlín efna til sýningar á barnabókum og myndlýsingum í Felleshus, sýningarrými og samfélagshúsi Norðurlandanna þar í borg. Sýningin opnar 17. júlí og sendur til 5. október 2025. Skrímslin verða þarna í…

27.06.2025 13:17 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Skrímslaveisla á færeysku | Monster Feast in Faroese Útgáfan 2025: Í lok apríl kom Skrímslaveisla út á færeysku hjá Bókadeildinni, nokkru síðar en útgáfurnar á íslensku og sænsku. Því var auðvitað fagnað með „hátíðar-gildis-stevnu-fagnaðarveitslu“ og almennri gleði. Fyrir færeyska textanum í Skrímslaveitslu stendur sem fyrr Rakel Helmsdal. Skrímslaveisla er nú komin út á fjórum tungumálum. Auk íslensku og færeysku gefur Argasso út Monsterfest á sænsku og Vild Maskine…

Skrímslaveisla á færeysku | Monster Feast in Faroese

Útgáfan 2025: Í lok apríl kom Skrímslaveisla út á færeysku hjá Bókadeildinni, nokkru síðar en útgáfurnar á íslensku og sænsku. Því var auðvitað fagnað með „hátíðar-gildis-stevnu-fagnaðarveitslu“ og almennri gleði. Fyrir færeyska textanum í…

27.06.2025 13:15 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Sumardögg | Midsummer dew Sólarupprás! Heimasíðan og myndabloggið hefur síðastliðnar vikur og mánuði goldið fyrir margvíslegan trassaskap og bara einhverskonar tjáningarfælni. Í heimi, sem hefur fyrir löngu skroppið saman, hrópa heimsmál og stjórnmál á athygli: þau koma okkur öllum við og enginn má undan líta. Um leið virkar það jákvæða og persónulega sem næsta sjúkleg sjálfhverfa. En sumarið er ljúft og við lifum góða bjarta daga á Íslandi.

Sumardögg | Midsummer dew

Sólarupprás! Heimasíðan og myndabloggið hefur síðastliðnar vikur og mánuði goldið fyrir margvíslegan trassaskap og bara einhverskonar tjáningarfælni. Í heimi, sem hefur fyrir löngu skroppið saman, hrópa heimsmál og stjórnmál á athygli: þau koma okkur öllum við og enginn…

27.06.2025 11:26 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Bókverkin | Book art – my artist’s books Hinar bækurnar:  Ég var að uppfæra myndasafnið hér síðunni sem ég tileinka bókverkum. Síðan er vinsæl ef marka má gestaganginn, en bókverkafólk er alveg sérstakur hópur listamanna sem er aldrei áberandi í listasenunni, en tengjast þvers og kruss um heiminn. Áhugann og bókverkaáráttuna má tengja við þráhyggju og nördisma í sinni bestu mynd, en þar sem breiddin í verkunum, aðferðum og innihaldi er engu að síður óþrjótandi.

Bókverkin | Book art – my artist’s books

Hinar bækurnar:  Ég var að uppfæra myndasafnið hér síðunni sem ég tileinka bókverkum. Síðan er vinsæl ef marka má gestaganginn, en bókverkafólk er alveg sérstakur hópur listamanna sem er aldrei áberandi í listasenunni, en tengjast þvers og kruss um heiminn.…

17.04.2025 10:32 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
„Sannkölluð myndaveisla“  | “A true feast of illustration” Myndlýsingar: Skrímslaveisla var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar við athöfn í Iðnó í gær, mánudaginn 14. apríl 2025. Fimmtán bækur eru tilnefndar til verðlauna: fimm fyrir frumasamdan texta, fimm fyrir myndlýsingar og fimm fyrir þýðingar. Hér má kynna sér allar tilnefndar bækur. Umsögn dómnefndar um Skrímslaveislu hljóðar svo: „Eins og sagan og persónurnar sem við þekkjum nú svo vel kalla á, þá svara myndirnar með þessari frábærri orku sem fær virkilega að njóta sín.

„Sannkölluð myndaveisla“  | “A true feast of illustration”

Myndlýsingar: Skrímslaveisla var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar við athöfn í Iðnó í gær, mánudaginn 14. apríl 2025. Fimmtán bækur eru tilnefndar til verðlauna: fimm fyrir frumasamdan texta, fimm fyrir myndlýsingar og…

15.04.2025 17:24 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Skrímsli í boði! | Monsters in the gallery Skrímsli á Barnamenningarhátíð: Á morgun, laugardaginn 5. apríl, opnar í Gallerí Fold lítil sýning með völdum myndum úr bókaflokknum um skrímslin. Myndirnar eru prentaðar í góðum gæðum á vandaðan pappír og eru til sölu í takmörkuðu upplagi, áritaðar af myndhöfundi. Bækurnar verða einnig til sölu í galleríinu. Í kynningu frá Gallerí Fold segir svo:  „Laugardaginn 5. apríl opnar sýningin „Skrímsli í boði“ í Gallerí Fold við Rauðarárstíg.

Skrímsli í boði! | Monsters in the gallery

Skrímsli á Barnamenningarhátíð: Á morgun, laugardaginn 5. apríl, opnar í Gallerí Fold lítil sýning með völdum myndum úr bókaflokknum um skrímslin. Myndirnar eru prentaðar í góðum gæðum á vandaðan pappír og eru til sölu í takmörkuðu upplagi, áritaðar af…

04.04.2025 11:31 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Dagur barnabókarinnar | International Children’s Book Day 2025 Dagur barna og bóka: Gleðilegan dag barnabókarinnar! Dagurinn, 2. apríl, er fæðingardagur H.C. Andersen, meistara táknsagna og ævintýra.  „Allt þarf að vera svo nýstárlegt og öðruvísi í dag.“ Svona kvartar haninn sem stekkur út úr gamla stafrófskverinu í einu ævintýri H.C. Andersen: ABC-Bogen. Og haninn bætir við: „Nú eru börn víst svo gáfuð að þau geta lesið áður en þau hafa lært stafrófið.”

Dagur barnabókarinnar | International Children’s Book Day 2025

Dagur barna og bóka: Gleðilegan dag barnabókarinnar! Dagurinn, 2. apríl, er fæðingardagur H.C. Andersen, meistara táknsagna og ævintýra.  „Allt þarf að vera svo nýstárlegt og öðruvísi í dag.“ Svona kvartar haninn sem stekkur út úr…

02.04.2025 14:46 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Næst á dagskrá … | Coming up next … ARKIR á HönnunarMars: HönnunarMars hefst í næstu viku og þá opnar bókverkasýningin Brotabrot í húsgagna- og hönnunarverslun Pennans í Skeifunni 10. Þar ætlum við ARKIR að sýna pappírsverk og kynna leik okkar með bókarform og pappírsbrot. Verið velkomin á opnun miðvikudaginn 2. apríl kl 17:00 - 19:00. Sjá einnig viðburðarboð á FB. Book art exhibition: DesignMarch in Reykjavík starts next week and my artist group…

Næst á dagskrá … | Coming up next …

ARKIR á HönnunarMars: HönnunarMars hefst í næstu viku og þá opnar bókverkasýningin Brotabrot í húsgagna- og hönnunarverslun Pennans í Skeifunni 10. Þar ætlum við ARKIR að sýna pappírsverk og kynna leik okkar með bókarform og pappírsbrot. Verið velkomin á opnun…

28.03.2025 11:56 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Dagur ljóðsins | World Poetry Day Beðið eftir vorinu: Í dag, 21. mars er ljóðum fagnað á alþjóðlegum degi ljóðsins. Og ljóðið lifir góðu lífi, það mætti jafnvel tala um einhverja vakningu síðustu ár. Í tilefni dagsins er hér neðar stutt vorljóð úr bókinni minni "til minnis" (Forlagið 2023). Ég ætla að halda á vit túnsúranna í dag, en kíkja svo í ljóðabækur í lok dags. Njótið ljóða!

Dagur ljóðsins | World Poetry Day

Beðið eftir vorinu: Í dag, 21. mars er ljóðum fagnað á alþjóðlegum degi ljóðsins. Og ljóðið lifir góðu lífi, það mætti jafnvel tala um einhverja vakningu síðustu ár. Í tilefni dagsins er hér neðar stutt vorljóð úr bókinni minni "til minnis" (Forlagið 2023). Ég…

21.03.2025 10:27 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Liljur | White lilies Liljur að lokum: Plönturíkið er þeirrar gerðar að þar finnst ekki ljótleiki. Svei mér þá. Og í sölnuðum gróðri býr fegurð ekki síðri en í nýútsprungnum blómum. Þessar liljur báru svo þungan ilm að þær þurftu sitt einkarými … en fagrar voru þær. At the end of the day… I think that there is no such thing as ugliness to be found in the plant kingdom.

Liljur | White lilies

Liljur að lokum: Plönturíkið er þeirrar gerðar að þar finnst ekki ljótleiki. Svei mér þá. Og í sölnuðum gróðri býr fegurð ekki síðri en í nýútsprungnum blómum. Þessar liljur báru svo þungan ilm að þær þurftu sitt einkarými … en fagrar voru þær. At the end of the day… I think…

28.02.2025 13:44 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Bókverkin á borðinu | Making books Bækur, bækur! Það er í hin ýmsu bókahorn að líta. Eftir ýmsar uppákomur sem settu strik í vinnureikninginn fyrstu mánuði ársins er ég að komast aftur á skrið. Þar á meðal er rétt að huga að sýningum sem listahópurinn minn ARKIR tekur þátt í. Ég bendi áhugasömum að fylgjast með fréttum á heimasíðu ARKANNA. Og fyrir þá sem vilja kynna sér bókverkalistina má benda á …

Bókverkin á borðinu | Making books

Bækur, bækur! Það er í hin ýmsu bókahorn að líta. Eftir ýmsar uppákomur sem settu strik í vinnureikninginn fyrstu mánuði ársins er ég að komast aftur á skrið. Þar á meðal er rétt að huga að sýningum sem listahópurinn minn ARKIR tekur þátt í. Ég bendi áhugasömum…

28.02.2025 13:44 — 👍 0    🔁 0    💬 0    📌 0
Preview
Skrímslin í útlöndum | Monster news Nei! í Eistlandi Bókaútgáfan NORÐUR er eistneskt forlag sem stofnað var árið 2023 og hefur það að markmiði að gefa út norrænar barna- og unglingabókmenntir. Fyrsta bókin um skrímslin, Nei! sagði li…

aslaugjonsdottir.com/2025/02/21/s...
- - -
#childrensbooks #icelandicauthor #monsterseries #illustration

28.02.2025 11:19 — 👍 1    🔁 0    💬 0    📌 0
Preview
Náttúran í borginni | Nature in the city Himinn og haf: Ég hugsa oft um það hvað við borgarbúar erum heppnir að hafa náttúruna svona nærri okkur. Og hvað það er mikilvægt að skerða ekki útivistarsvæðin (nei, ég er ekki að tala um fellingu…

aslaugjonsdottir.com/2025/02/21/n...
- - -
#photography #reykjavik #iceland #authorslife #outdoorlife

28.02.2025 11:16 — 👍 4    🔁 0    💬 1    📌 0

@aslaugjons is following 19 prominent accounts